Hollenska félagið PSV Eindhoven er að reyna að fá Hjört Hermannsson leikmann Fylkis í sínar raðir.
Samkvæmt frétt á vef ED hefur PSV Eindhoven hrifist af Hirti og vill fá hann í unglingalið sitt.
Samkvæmt frétt á vef ED hefur PSV Eindhoven hrifist af Hirti og vill fá hann í unglingalið sitt.
Hjörtur gat lítið tjáð sig um málið við Fótbolta.net í dag og sagði það vera á viðkvæmu stigi.
Hjörtur er fæddur árið 1995 en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Fylkis á síðasta tímabili. Hann kom þá við sögu í níu leikjum í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim eitt mark.
Að auki hefur Hjörtur skorað þrjú mörk í 17 leikjum með U17 ára landsliði Íslands og tvö mörk í átta leikjum með U19 ára landsliðinu.


