Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 15:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Jason Roberts á leið til Reading
Jason Roberts, framherji Blackburn Rovers, er á leið til Reading en hann fer í læknisskoðun hjá félaginu í dag.

Þessi 34 ára gamli leikmaður hefur ekki átt fast sæti í liði Blackburn á tímabilinu og einungis leikið tólf leiki.

Roberts hefur verið hjá Blackburn síðan árið 2006 en nú er ljóst að hann er á förum.

Reading verður tíunda enska félagið sem Roberts spilar með en auk Blackburn hefur hann einnig verið á mála hjá Hayes, Wolves, Torquay, Bristol City, Bristol Rovers, West Brom, Portsmouth og Wigan.
Slapp
banner
banner
banner