Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 18:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: AP 
Iniesta frá keppni næstu vikurnar
Andres Iniesta, leikmaður Barcelona, verður frá næstu tvær til þrjár vikurnar vegna meiðsla á læri.

Iniesta fór meiddur af velli í fyrri hálfleik í 2-2 jafntefli Barcelona og Real Madrid í spænska konungsbikarnum í gær.

Alexis Sanchez verður einnig frá í eina til tvær vikur vegna meiðsla á öxl en hann meiddist líkt og Iniesta í leiknum í gær.

Báðir leikmennirnir munu missa af leik Barcelona og Villareal á laugardag og fyrri leiknum gegn Valencia eða Levante í undanúrslitum bikarsins í næstu viku.

Barcelona er nú þegar án David Villa, Ibrahim Afellay og Andreu Fontas en þeir verða allir frá í lengri tíma.
Slapp
banner
banner