Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 20:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Jason Roberts til Reading (Staðfest)
Reading hefur fengið framherjann Jason Roberts í sínar raðir en hann kemur frá Blackburn Rovers.

Þessi 34 ára gamli reynslubolti stóðst læknisskoðun hjá Reading í dag og skrifaði undir eins og hálfs árs samning.

Roberts hefur ekki átt fast sæti í liði Blackburn á tímabilinu og einungis leikið tólf leiki.

Samtals skoraði Roberts 29 mörk í yfir 150 leikjum með Blackburn en hann kom til félagsins árið 2006.

Reading verður tíunda enska félagið sem Roberts spilar með en auk Blackburn hefur hann einnig verið á mála hjá Hayes, Wolves, Torquay, Bristol City, Bristol Rovers, West Brom, Portsmouth og Wigan.
Slapp
banner
banner