Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 16:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Goal 
Bayern plataði stuðningsmenn - Sögðust vera að fá leikmann
Þýska félagið FC Bayern plataði stuðningsmenn sína rækilega í dag. Félagið birti frétt á heimasíðu sinni um að öflugur framherji væri á leiðinni.

Stuðningsmenn Bayern voru hvattir til að fylgjast með fréttamannafundi í beinni útsendingu á Facebook síðu félagsins en þar átti að kynna stóra nafnið.

Þegar stóra stundin rann upp urðu stuðningsmennirnir hins vegar fyrir vonbrigðum því þá poppaði upp umslag á síðunni með mynd af prófílmynd þess stuðningsmanns sem var að horfa á útsendinguna.

Bayern sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem félagið sagðist hafa verið að ítreka mikilvægi stuðningsmanna sinna með þessu gríni.

,,Kæru stuðningsmenn, eins og þið hafið tekið eftir nú þegar þá var myndband af fréttamannafundinum ekki alvöru heldur smá grín fyrir stuðningsmenn okkar á Facebook þar sem stuðningsmennirnir eru aðalatriðið hjá okkur," sagði í yfirlýsingunni.

,,Allir stuðningsmenn FCB eru 'þessi magnaði nýi leikmaður' okkar tólfti maður!"
Slapp
banner
banner