Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 27. janúar 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Fjórir semja við Dalvík/Reyni
Mynd: Dalvík/Reynir
Snorri Eldjárn Hauksson, Gunnar Már Magnússon, Viktor Már Jónasson og Reynir W. Lord skrifuðu undir samning við Dalvík/Reyni síðastliðinn föstudag.

,,Við óskum þeim og D/R til hamingju með samninginn. Áfram verður haldið með samningana á næstu dögum," segir á heimasíðu Dalvíkur/Reynis.

Gunnar Már og Snorri Eldjárn voru fastamenn í liði Dalvíkur/Reynis sem endaði í fimmta sæti í annarri deildinni á síðasta tímabili en Viktor og Reynir léku ekki með liðinu þá.

Á myndinni til hliðar er Gunnar Már Magnússon eftir undirskriftina en með honum á myndinni eru Þórir Áskelsson þjálfari Dalvíkur/Reynis og Stefán Garðar Níelsson.
Slapp
banner
banner