Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Tomi Ameobi og Matarr Jobe í Grindavík (Staðfest)
Grindavík sendi frá sér fréttatilkynningu nú í kvöld þess efnis að félagið hefur fengið til sín tvo leikmenn, þá Tomi Ameobi frá BÍ/Bolungarvík og Matarr jobe frá Val.

Tomi Ameobi er bróðir Shola og Sammy Ameobi sem báðir leika með Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni. Hann gerði tveggja ára samning við grindavík.

Hann er 22 ára gamall og lék í framlínu BÍ/Bolungarvíkur í 1. deildinni fyrrasumar. Hann spilaði þá alla 22 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim 11 mörk og skoraði líka eitt mark í þremur bikarleikjum.

Hjá Grindavík hittir hann fyrir Guðjón Þórðarson sem þjálfaði hann hjá BÍ/Bolungarvík í fyrrasumar en Guðjón tók við stjórnartaumunum í Grindavík að tímabilinu loknu.

Matarr Jobe gengir gjarnan gælunafninu Nesta en hann verðru tvítugur á árinu. Hann var lánaður til Víkings frá Ólafsvík í 1. deildina í sumar og lék þá 13 leiki og skoraði eitt mark. Hans fyrstu meistaraflokksleikir.

Hann er landsliðsmaður Gambíu sem gerir þriggja ára samning við Grindavík. Nesta, sem kom til Vals fyrir 18 mánuðum, er hafsent, fæddur 1992 og var fyrirliði U-17 ára liðs Gambíu sem urðu Afríkumeistarar 2009
Slapp
banner
banner