Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 19:00
Elvar Geir Magnússon
Mourinho beið eftir dómaranum við bílinn hans
Mynd: Dirty Tackle
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, átti eitthvað vantalað við Fernando Teixeira Vitienes dómara eftir leikinn gegn Barcelona í gær.

Madrídarliðið féll út úr bikarnum með því að gera 2-2 jafntefli við Börsunga eftir að hafa tapað fyrri leiknum með eins marks mun.

Real fékk sjö gul og eitt rautt í leiknum í gær samanborið við eitt gult á Barcelona.

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum beið Mourinho eftir dómaranum við bíl hans eftir leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Þegar dómarinn mætti fékk hann ekki jákvæðar kveðjur frá portúgalska þjálfaranum.
Slapp
banner
banner
banner