Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 19:06
Elvar Geir Magnússon
Redknapp getur ekki skrifað og veit ekki hvað tölvupóstur er
Harry Redknapp eyðir miklum tíma í dómssalnum þessa dagana en hann er sakaður um stórfelld skattsvik. Hann hefur því ekki getað stýrt æfingum Tottenham í vikunni en verður við stjórnvölinn á morgun þegar liðið leikur bikarleik gegn Watford.

Mikið er fjallað um það í enskum dagblöðum í dag að Redknapp sagðist fyrir dómi vera haldinn lesblindu á háu stigi.

Hann segist skrifa eins og tveggja ára krakki og ekki geta stafað orð. Hann segist vera óskipulagður og borga endurskoðanda sínum háar fjárhæðir árlega til að sjá um öll sín fjármál.

„Ég get ekki unnið á tölvur og veit ekki hvað tölvupóstur er. Ég hef aldrei sent fax og hef aldrei sent sms-skilaboð," segir Redknapp.

Þrátt fyrir þessa erfiðleika er hann talinn einn færasti knattspyrnustjóri ensku úrvalsdeildarinnar og talinn líklegastur sem næsti landsliðsþjálfari Englands.
Slapp
banner