Annarri umferð í B-riðli Afríkukeppninnar lauk í kvöld en í fyrri leiknum mættust Súdan og Angóla og í þeim seinni áttust við Fílabeinsströndin og Búrkína Fasó.
Súdan krækti þá í sitt fyrsta stig í keppninni eftir 2-2 jafntefli við Angóla. Súdan lenti tvisvar undir með mörkum frá Manucho en Mohamed Ahmed jafnaði í tvígang fyrir Súdan. Til gamans má geta að Súdan hafði ekki skorað mark í Afríkukeppninni síðan 1976.

Fyrnasterkt lið Fílabeinsstrandarinnar lagði þá Búrkína Fasó af velli með tveimur mörkum gegn engu og tryggði sér um leið áfram í 8-liða úrslit þegar ein umferð er eftir í riðlakeppninni. Salomon Kalou, leikmaður Chelsea, skoraði fyrsta mark leiksins áður en Bakary Kone innsiglaði sigur Fílabeinsstrandarinnar með sjálfsmarki.
Fílabeinsströndin leiðir riðilinn með sex stig, Angóla er í öðru sæti með fjögur stig, Súdan er þar á eftir með eitt stig og Búrkína Fasó rekur lestina með ekkert stig.
Súdan 2 - 2 Angóla
0-1 Manucho ('5)
1-1 Mohamed Ahmed ('33)
1-2 Manucho ('50, víti)
2-2 Mohamed Ahmed ('74)
Fílabeinsströndin 2 - 0 Búrkína Fasó
1-0 Salomon Kalou ('16)
2-0 Bakary Kone ('82, sjálfsmark)