AC Milan 3 - 1 Lazio
0-1 Djibril Cisse ('5)
1-1 Robinho ('15)
2-1 Clarence Seedorf ('18)
3-1 Zlatan Ibrahimovic ('84)
0-1 Djibril Cisse ('5)
1-1 Robinho ('15)
2-1 Clarence Seedorf ('18)
3-1 Zlatan Ibrahimovic ('84)
AC Milan tryggði sér í kvöld í undanúrslit ítalska bikarsins þegar liðið lagði Lazio af velli með þremur mörkum gegn einu á San Siro.
Fyrstu tuttugu mínútur leiksins voru ansi fjörugar og það byrjaði ekki vel fyrir AC Milan þegar Djibril Cisse kom Lazio yfir eftir aðeins fimm mínútur.
Heimamenn náðu þó fljótlega að snúa blaðinu við með mörkum frá Robinho og Clarence Seedorf og staðan 2-1 fyrir AC Milan þegar 18 mínútur voru liðnar af leiknum.
Lazio fékk fjölmörg færi til þess að jafna leikinn í seinni hálfleik en tókst ekki. Það var síðan Zlatan Ibrahimovic sem gulltryggði AC Milan sigur með marki á lokamínútunum.
Fleiri urðu mörkin ekki og því 3-1 sigur AC Milan staðreynd, en félagið mætir Juventus í undanúrslitunum.





