Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 22:13
Sebastían Sævarsson Meyer
Spænski bikarinn: Valencia ekki í vandræðum með Levante
Mætir Barcelona í undanúrslitum
Levante 0 - 3 Valencia (1-7 samanlagt)
0-1 Aritz Aduriz ('25)
0-2 Pablo Piatti ('30)
0-3 Pablo Piatti ('85)
Rautt spjald: Oscar Serrano, Levante ('72)

Valencia fór örugglega áfram í undanúrslit spænska Konungsbikarsins eftir 3-0 sigur á Levante í kvöld en samanlagt fóru leikar 7-1 fyrir Valencia.

Aritz Aduriz skoraði fyrsta mark leiksins áður en Pablo Piatti skoraði í tvígang. Levante lék einum leikmanni færri í tæpar tuttugu mínútur eftir að Oscar Serrano fékk að líta sitt annað gula spjald og því rautt.

Valencia á erfitt verk fyrir höndum í undanúrsitunum en þá mætir liðið Barcelona.
Slapp
banner
banner
banner