Heimild: Football Italia
Maxi Lopez var meðal áhorfenda þegar AC Milan vann 3-1 sigur gegn Lazio í ítalska bikarnum í gærkvöldi. Adriano Galliani, varaforseti félagsins, segir að hann vilji ólmur koma til Mílanóborgar og að Carlos Tevez sé sömu skoðunnar.
Félagið hefur tekið það skýrt fram að annað hvort muni þessi framherji Catania eða Carlos Tevez ganga til liðs við sig, en þeir hafa sett Manchester City ákveðin tímamörk sem eru nánar tiltekið síðar í dag.
,,Annað kvöld (í kvöld) klukkan 19:00 munum við ganga frá samningi," sagði Galliani.
,,Ég get gefið ykkur vísbendingu. Nýi framherjinn okkar verður frá Argentínu og eftirnafn hans endar á stafnum 'z'."
,,Maxi Lopez er frábær strákur og ég veit ekki hvað ég á að segja. Næstu 24 klukkustundir eru ráðgáta fyrir mig einnig."
,,Þetta er í fyrsta skiptið sem við læsum leikmann inni í nokkra daga, en hvað sem gerist, þá verður Maxi allavega leikmaður Milan í júlí. Það er draumur hans að koma og spila fyrir okkur."
,,Tevez og Lopez vilja báðir ganga til liðs við Milan, sama hvað það kostar, og það er jákvætt. Catania sýndi okkur mikinn skilning, meiri en önnur félög. Við ræðum þetta frekar þegar þessu er lokið."



