Bjarni Fel var valinn sjálfboðaliði ársins 2011 af Knattspyrnudeild KR fyrir félagsstarf.
Veittar voru viðurkenningar síðasta laugardag fyrir sjálboðaliðastarf Knattspyrnudeildar KR.
Bjarni var virkur í KR-útvarpinu allt sumarið 2011 og lýsti þar flestum leikjum sem KR spilaði.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Bjarna með viðurkenninguna ásamt Bjarna Guðjónssyni fyrirliða og Kristni Kjærnested formanni knattspyrnudeildar KR.



