Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Sakborningurinn Redknapp hlakkar til leiksins gegn Watford
Kevin bond, aðstoðarmaður Harry Redknapp hjá Tottenham, segir að sá síðarnefndi geti ekki beðið eftir því að komast aftur á varamannabekkinn til að stýra liði sínu gegn Watford í enska bikarnum.

Redknapp hefur lítið sem ekkert getað undirbúið sína menn fyrir leikinn í vikunni, þar sem hann hefur þurft að sitja réttarhöld sem sakborningur vegna skattsvika.

Hann verður mættur aftur í holuna í kvöld í fjórðu umferð bikarsins, en hann hefur verið í símasambandi við Bond í vikunni.

,,Ég talaði við hann í gær og hann vildi ólmur heyra hvernig okkur gengi í undirbúningnum fyrir leikinn gegn Watford," sagði Bond.

,,Við undirbjuggum það að hann kæmist í leikinn og hann hlakkaði virkilega til."

,,Hann lifir fyrir að mæta á æfingasvæðið, hann nýtur þess virkilega. Hann er alltaf til í að ræða málin."

,,Hann hefur ekkert verið ólíkur sjálfum mér. Þegar ég tala við hann hljómar hann alveg jafn einbeittur og vanalega. Við höfum ekki talið að við þyrftum að ræða þetta mál sérstaklega við leikmennina. Það vita allir hvað er í gangi og lifa með því."

,,Að mestu leiti eru æfingarnar alveg eins, nema bara að Harry er ekki á svæðinu."

Slapp
banner
banner
banner