Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Bróðir Wayne Rooney skiptir um lið í Bandaríkjunum
John Rooney, sem er líkast til þekktur fyrir það eitt að vera bróðir Wayne Rooney hjá Manchester United, hefur skipt um lið í Bandaríkjunum og er genginn til liðs við Orlando City í þriðju efstu deild þar í landi.

Þessi fyrrum leikmaður Macclesfield í heimalandinu náði aldrei að festa sig í sessi í New York Redbulls og var leystur undan samningi þar.

Rooney hóf ferilinn í unglingaakademíu Everton er hann var sex ára gamall en hann mun nú vinna undir stjórn Adrian Heath, sem þjálfaði hann í Bítlaborginni.

,,Ég hef þekkt John lengi, frá því í gamla daga á Englandi. Við erum hæstánægðir með að hafa fengið hann," sagði Heath.

,,Hann mun reynast okkur virkilega vel. Hann getur spilað margar stöður á miðjunni, sem hentar okkur vel."
Slapp
banner
banner