Enski bikarinn sér um stuðið um helgina en þá fara 32. liða úrslitin fram og hefst í kvöld með tveimur leikjum. Fyrst mætast Watford og Tottenham og stuttu síðar hefst viðureign Everton og Fulham.
Í hádeginu á morgun eigast við QPR og Chelsea en þar gæti Heiðar Helguson verið í byrjunarliði QPR. Klukkan 12:45 er síðan komið að stórleik umferðarinnar þar sem Liverpool tekur á móti Manchester United.
Í hádeginu á morgun eigast við QPR og Chelsea en þar gæti Heiðar Helguson verið í byrjunarliði QPR. Klukkan 12:45 er síðan komið að stórleik umferðarinnar þar sem Liverpool tekur á móti Manchester United.
Það verður Íslendingaslagur klukkan 15:00 þegar Bolton og Swansea mætast en þar gæti Grétar Rafn Steinsson byrjað fyrir Bolton og Gylfi Þór Sigurðsson í liði Swansea.
Umferðinni lýkur svo með tveimur leikjum á sunnudag þar sem Sunderland fær Middlesbrough í heimsókn áður en Arsenal mætir Aston Villa.
Í kvöld:
19:45 Watford - Tottenham (Beint á Stöð 2 Sport)
20:00 Everton - Fulham
Laugardagur:
12:00 QPR - Chelsea (Beint á Stöð 2 Sport 3)
12:45 Liverpool - Manchester United (Beint á Stöð 2 Sport)
15:00 Blackpool - Sheffield Wed
15:00 Bolton - Swansea
15:00 Derby - Stoke (Beint á Stöð 2 Sport)
15:00 Hull - Crawley
15:00 Leicester - Swindon
15:00 Millwall - Southampton
15:00 Sheffield Utd - Birmingham
15:00 Stevenage - Notts County
15:00 West Brom - Norwich
17:15 Brighton - Newcastle (Beint á Stöð 2 Sport)
Sunnudagur:
13:30 Sunderland - Middlesbrough (Beint á Stöð 2 Sport)
16:00 Arsenal - Aston Villa (Beint á Stöð 2 Sport)



