Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Leyndarmálið á bakvið árangur Miðbaugs-Gíneu
Heimamenn í Miðbaugs-Gíneu hafa verið að gera frábæra hluti það sem af er Afríkukeppninni. Liðið vann góðan 1-0 sigur gegn Líbýu og svo óvæntan 2-1 sigur gegn Senegal og er komið upp úr riðlakeppninni.

Þetta er einkar athyglisvert í ljósi þess að Miðbaugs-Gínea er neðsta lið keppninnar á heimslista FIFA, nánar tiltekið í 151. sæti.

Þegar skoðað er hvernig þetta litla land náði þessum frábæra árangri kemur ýmislegt athyglisvert í ljós. Markvörður þeirra er Brasilíumaður, þeir eru með varnarmann frá Líberíu, miðjumann frá Fílabeinsströndinni og framherja frá Kamerún. Auk þess er fjöldi spænskra leikmanna í liðinu.

Í raun var enginn af þeim 13 leikmönnum sem brasilíski þjálfarinn Gilson Paulo notaði síðasta miðvikudag fæddur í landinu. Í 23 manna hóp eru einungis þriðji markvörðurinn Felipe Ovono og varamaðurinn Jose Bokung fæddir í Miðbaugs-Gíneu.

Landsliðsþjálfarinn Paulo hafði áður komið nokkrum samlöndum sínum í landslið Tógó þegar hann var þar við stjórnvölinn. Svona liðsval fær mann alvarlega til að velta því fyrir sér hver er í raun tilgangurinn með landsliðum, þó að þetta sé fullkomlega löglegt samkvæmt FIFA. Kannski ætti Ísland að redda sér nokkrum Brössum?
Slapp
banner