Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: New York Post 
Hans Backe: Guðlaugur Victor er mikill vinnuþjarkur
Hans Backe, þjálfari New York Red Bulls fer fögrum orðum um Guðlaug Victor Pálsson verðandi leikmann liðsins í viðtali við New York Post sem birt var í gær.

Guðlaugur Victor er við það að ganga til liðs við Red Bulls, en hann kemur til með að fara í læknisskoðun í dag áður en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til næstu tveggja ára með möguleika á að framlengja þann samning um tvö ár aukalega.

Hann var seinast á mála hjá Hibernian í skosku úrvalsdeildinni, en þar lék hann um 40 leiki fyrir félagið á einu ári. Leikmaðurinn og félagið komust að samkomulagi um að rifta samning hans svo hann gæti róað á önnur mið.

Hans Backe þjálfari Red Bulls staðfesti jafnframt við New York Post að Guðlaugur væri á leið til félagsins, en hann er spenntur fyrir leikmanninum.

,,Við erum svo að sjálfsögðu að fá Guðlaug Victor Pálsson inn sem gegnir stöðu miðjumanns, en hann verður síðasti leikmaðurinn sem við fáum inn á það svæði," sagði Backe.

,,Hann er hávaxinn, líkamlega sterkur og mikill vinnuþjarkur. Hann er með fína sendingargetu, í raun mjög góða. Þetta er týpískur íslenskur karakter, sem vinnur á fullu allar 90 mínúturnar."

,,Ég er virkilega forvitinn að sjá hann því ég hef ekki séð það mikið af honum, en allir tala rosalega vel um hann,"
sagði hann enn fremur.

Guðlaugur hóf feril sinn hjá Fjölni ungur að árum áður en hann fór til Fylkis. Þar lék hann upp yngri flokka við góðan orðstír og var keyptur til AGF í Danmörku. Hann stoppaði þó ekki lengi þar en danska félagið seldi hann til Liverpool þar sem hann lék frá 2009 til 2011 með unglinga- og varaliðinu. Hann lék svo síðast með Hibernian eins og fyrr segir.

,,Hann var náttúrulega hjá Liverpool. Hann spilaði þá eitthvað um 40 leiki fyrir Hibernian í skosku úrvalsdeildinni, sem er kannski ekki besta deildin, en að gera það 19 ára gamall segir ýmislegt."

,,Ég veit að Roy Hodgson var virkilega hrifinn af leik hans og fékk hann upp í aðalliðið á undirbúningstímabilinu þegar hann tók við liðinu. Hann getur spilað aftarlega á miðjunni, en hans staða er þó aðallega á miðri miðjunni,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner