Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu í enska boltanum en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á þriðjudag.
Chelsea telur að félagið geti unnið Inter í baráttunni um Paul Pogba leikmann Manchester United. Þessi 18 ára gamli leikmaður verður fljótlega samningslaus og Chelsea ætlar að bjóða þrjár milljónir punda í hann. (Daily Mirror)
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er á eftir Edinson Cavani framherja Napoli. (Footybunker)
Tottenham á í viðræðum við Sao Paulo um kaup á varnarmanninum Bruno Uvini. (Daily Mail)
WBA vill fá rússneska framherjann Pavel Pogrebnyak á láni frá Stuttgart. (Daily Mirror)
Martin Jol, stjóri Fulham, ætlar að reyna að fá Carlos Sanchez frá Valenciennes í Frakklandi. (Talksport)
Chelsea hefur ekki gefist upp á að reyna að fá Gregory van der Wiel hægri bakvörð Ajax. (Talksport)
Andy Johnson, framherji Fulham, er á óskalista Rubin Kazan og Galatasaray. (Daily Mail)
Sunderland er að íhuga að bjóða Kevin Davies framherja Bolton samning. (Sunderland Echo)
Newcastle hefur hækkað tilboð sitt í Adrian Mariappa varnarmann Watford. (Daily Mail)
David Moyes hefur spurst fyrir um Guillaume Horarau framherja PSG. (The Guardian)
Scott Sutter, bakvörður Young Boys, er á leið til Blackburn. (Lancashire Telegraph)
Steven Gerrard hefur beðið stuðningsmenn Liverpool um að halda ró sinni fyrir leikinn gegn Manchester United á morgun. (Daily Star)
Wayne Rooney gæti misst af leiknum á morgun vegna ökklameiðsla. (The Times)
Martin Atkinson hefur hætt við að dæma leikinn vegna veikinda. Atkinson dæmdi síðast hjá Manchester United þegar liðið tapaði gegn Chelsea í mars í fyrra en hann fékk þá mikla gagnrýni frá Sir Alex Ferguson. (The Times)
Anton Ferdinand, varnarmaður QPR, ætlar að eyða 30 þúsund pundum í auka öryggisgæslu fyrir leikinn gegn Chelsea á morgun. (The Sun)
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Arsenal, er búinn að koma sér inn í enska landsliðið. (Daily Star)
Real Madrid mun reyna að fá Arsene Wenger í þjálfarastólinn ef liðið heldur áfram að tapa fyrir Barcelona. (Daily Express)



