Heimild: Heimasíða FIFA
Suður-kóreski framherjinn Ahn Jung-Hwan mun leggja skóna á hilluna í næstu viku.
Ahn spilaði síðast með Dalian Shide í Kína en hann hefur nú ákveðið að hætta 36 ára að aldri.
Ahn skoraði sigurmark Suður-Kóreu þegar liðið lagði Ítalíu 2-1 í framlengdum leik í 16-liða úrslitum á HM 2002.
Á þeim tíma var Ahn á mála hjá Perugia á Ítalíu en Luciano Gaucci eigandi félagsins var allt annað en sáttur með sigurmark Ahn og rifti samningi hans daginn eftir leikinn.
Síðan þá hefur Ahn meðal annars leikið í Þýskalandi, Japan og Frakklandi en ferlinum er nú lokið.


