Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 27. janúar 2012 10:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Samba vill skilja við Blackburn
Christophber Samba, fyrirliði Blackburn, segist þurfa að skilja við liðið. Tottenham og QPR hafa bæði sýnt Samba áhuga en Blackburn segist ekki ætla að selja hann áður en félagaskiptaglugginn lokar.

,,Þegar að hjónum kemur ekki vel saman þá skilja þau og það er það sem ég og Blackburn verðum að gera," sagði Samba.

,,Blackburn þarf leikmenn sem eru 100% með hugann hjá félaginu og ég er það ekki. Eina leiðin til að leysa þetta er að láta mig fara. Það verður mjög erfitt fyrir mig að spila aftur með þessu liði. Ég er kominn á endastöð hér. Ég mun ekki breytast svo það er mér og þeim fyrir bestu að selja mig núna."

Samba skrifaði undir nýjan samning fyrir ári síðan en hann segir að Venky's, eigendur Blackburn frá Indlandi, hafi svikið loforð sem þeir gáfu þá um að styrkja hópinn.

,,Ég skrifaði undir nýjan samning í janúar því að Venky's sagði mér að þeir hefðu stórar áætlanir. Ronaldinho og fleiri nöfn voru nefnd til sögunnar og þeir lofuðu að kaupa menn í liðið. Það hefur ekki gerst," sagði Samba.

,,Þeir skilja ekki fótboltann í þessu landi og þeir átta sig ekki á því hversu mikið ég hef gefið Blackburn og að þeir hafi svikið loforð sem þeir hafa gefið. Ég var áfram hér því ég trúði þeim en þeir voru ekki heiðarlegir við mig og ég veit núna að ég tók ranga ákvörðun. Ég er pirraður eins og stuðningsmennirnir sem hljóta að hafa treyst eigendunum líka."

Talið er að Blackburn vilji fá fimmtán milljónir punda fyrir Samba en hann segist ekki eiga að vera með svona háan verðmiða.

,,Ég er ekki 15 milljóna punda leikmaður. Blackburn keypti mig á 400 þúsund pund frá Hertha Berlin og það eru góð viðskipti ef þeir fá 7 milljónir núna. Ég hef ekkert á móti stjóranum. Það er ekki eins og hann hafi fengið 100 milljónir punda til að eyða, hann er að reyna sitt besta úr því sem hann hefur. Þetta er á milli mín og eigandans. Þetta er persónulegt."
Slapp
banner
banner
banner