Heimild: BBC
Gríska félagið Olympiakos hefur gert eins og hálfs árs samning við Norður-írska markvörðinn Roy Carroll.
Þessi 34 ára gamli leikmaður kemur til Olympiakos frá OFI Krít sem er einnig frá Grikklandi.
,,Það er mikill heiður að vera hluti af Olympiakos, besta liðinu í Grikklandi," sagði Carroll.
Carroll, sem er 34 ára, hefur meðal annars leikið með Manchester United, Rangers, Wigan, West Ham og Hull á ferli sínum.
Áður en hann fór til Grikklands lék Carroll með OB í Danmörku en ferill hans hefur ekki náð háum hæðum undanfarin ár.


