Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 11:20
Elvar Geir Magnússon
Mancini telur að dómararnir þurfi hvíld
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, telur að leikjaálag dómara sé að koma niður á gæðum dómgæslunnar.

„Það er erfitt að spila marga leiki. Líka fyrir dómarana. Dómararnir eru stundum þreyttir, það er erfitt fyrir menn að spila á tveggja eða þriggja daga fresti," segir Mancini.

Mancini telur að slök dómgæsla hafi kostað City stig í baráttunni. Í vikunni var hann gríðarlega ósáttur við vítaspyrnu sem Liverpool fékk í deildabikarkeppninni.

Hann er þó ekki með samsæriskenningar um að dómarar séu vísvitandi að dæma gegn City. „Þetta er bara óheppni. Við höfum fengið á okkur dýrkeypta dóma í desember og janúar," segir Mancini.
Slapp
banner
banner
banner