Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Ísland mætir Svíþjóð í maí
Lars Lagerback, landsliðsþjálfari Íslands, mun fá nóg af leikjum til að skoða liðið áður en undankeppni EM hefst í haust.

Í gær var greint frá því að Ísland muni leika við Frakka í vináttuleik þann 27. maí og nú hafa knattspyrnusambönd Íslands og Svíþjóðar komist að samkomulagi um að mætast í vináttulandsleik á Råsunda vellinum í Stokkhólmi, 30. maí næstkomandi

Svíar eru að undirbúa sig fyrir úrslitakeppni EM sem hefst 8. júní og verður leikin í Póllandi og Úkraínu. Svíar eru þar í riðli með Englandi, Úkraínu og Frökkum.

Svíar hafa haft yfirhöndina í leikjum gegn Íslendingum en þjóðirnar léku síðast árið 2007 á Råsunda vellinum. Þá höfðu heimamenn betur, 5 - 0, undir stjórn Lars Lagerbåck.

Fyrstu leikir Íslands undir stjórn Lagerback verða í næsta mánuði gegn Japan þann 24. febrúar og Svartfellingum þann 29. febrúar.
Slapp
banner