Senegalski sóknarmaðurinn Moussa Sow er kominn til tyrkneska félagsins Fenerbahce frá Lille. Þetta var tilkynnt í morgun.
Framtíð Fenerbahce er í óvissu þar sem stjórnarformaðurinn Aziz Yildirim er grunaður um hagræðingu úrslita og gæti liðið verið dæmt niður um deild.
Framtíð Fenerbahce er í óvissu þar sem stjórnarformaðurinn Aziz Yildirim er grunaður um hagræðingu úrslita og gæti liðið verið dæmt niður um deild.
Sow var markakóngur frönsku deildarinnar á síðasta tímabili.
Hann er 26 ára og fékk höfðinglegar móttökur frá stuðningsmönnum Fenerbahce þegar hann lenti í Tyrklandi.
„Fleiri félög vildu fá mig en ég held að þetta sé rétta liðið fyrir mig," segir Sow.



