Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 12:37
Elvar Geir Magnússon
Wilshere spilar líklega ekki á tímabilinu
Jack Wilshere mun líklega ekki spila neitt á tímabilinu samkvæmt frétt Guardian. Bakslag hefur orðið í endurkomu hans.

Þessi efnilegi miðjumaður Arsenal hefur verið að glíma við ökklameiðsli og var búist við að stutt væri í að hann gæti spilað á ný.

Hann hefur ekkert getað spilað á tímabilinu og nú er hinsvegar ekki útlit fyrir að það breytist.

Þetta er áfall fyrir Arsenal sem berst um sæti í Meistaradeildinni fyrir næsta tímabil. Þá er þetta að sjálfsögðu mikið persónulegt áfall fyrir Wilshere enda framundan Evrópukeppni landsliða í sumar.
Slapp