Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 27. janúar 2012 18:00
Elvar Geir Magnússon
Xavi: Leikmenn Real Madrid kunna ekki að tapa
„Þeir kunna ekki að tapa," sagði spænski miðjumaðurinn Xavi og hristi hausinn á sjónvarpsstöð Barcelona. Xavi vissi ekki að útsendingin væri þá hafin.

Xavi var að tala um Real Madrid en Barcelona sló liðið út úr bikarkeppninni í vikunni með 4-3 sigri samtals í tveimur leikjum.

Mikill hiti er milli leikmanna þessara tveggja liða, til að mynda hefur Sergio Ramos hjá Real Madrid ásakað Sergio Busquets um að hafa gert sér upp meiðsli í leiknum.

Þá beið Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, við bíl dómarans Fernando Teixeira Vitienes eftir leikinn og lét hann svo heyra það.
Slapp
banner
banner