Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson skoruðu báðir sín fyrstu mörk fyrir Halmstad þegar liðið tapaði 3-2 gegn danska liðinu FC Nordsjælland í gær.
Guðjón og Kristinn gengu báðir í raðir Halmstad undir lok síðasta árs og í gær léku þeir sinn fyrsta leik með liðinu.
Nordsjælland komst í 3-0 strax eftir tólf mínútur áður en Guðjón minnkaði muninn í 3-1 með marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu.
Kristinn opnaði síðan markareikning sinn með laglegu skoti í síðari hálfleiknum og lokatölur 3-2.
Guðjón og Kristinn voru báðir í byrjunarliði Halmstad en þeir fóru af velli undir lok leiks.



