Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 09:00
Magnús Már Einarsson
Íslendingar með frægum: Mario Balotelli og Ronaldinho
Þá er komið aftur að hinum sívinsæla lið ,,Íslendingar með frægum fótboltamönnum" en eins og nafnið gefur til kynna eru þar birtar myndir af Íslendingum með frægum fótboltamönnum. Öllum er frjálst að senda okkur inn myndir af sér með frægum fótboltaköppum og á hverjum föstudegi birtum við fjórar nýjar slíkar myndir.

Sendu okkur mynd af þér og frægum fótboltakappa og láttu fylgja með smá texta um hvenær og hvar þú hittir hann og jafnvel mjög stutta sögu af því þegar þú hittir hann. Sendið endilega myndir á [email protected].

Athugið að Fótbolti.net áskilur sér rétt til að nota allar myndirnar sem sendar eru til birtinga á www.fotbolti.net. Öllum er frjálst að senda inn myndir af sér með frægum fótboltamanni er það einnig algjörlega óháð því hversu gömul myndin er.
Hér að neðan má sjá nýjasta skammtinn af myndum af Íslendingum með frægum fótboltaköppum.


Myndir birtar föstudaginn 3. febrúar 2011


Sveinn Þ. Sigþórsson, Sigþór Einarsson, Bogi N. Bogason, Bogi Í. Bogason, Arnar Ó. Sigþórsson og Jónína B. Bogadóttir hittu Mario Balotelli framherja Manchester City á veitingastað í Manchester kvöldið eftir leik Manchester City og Tottenham.
Aníta Harpa fékk ferð á leik Barcelona og Liverpool í fermingargjöf árið 2007.  Hún gisti á sama hóteli og leikmenn Barcelona og hitti nokkra leikmenn liðsins.  Þar á meðal var Ronaldinho en Aníta spjallaði við Brasilíumanninn í klukkutíma.

Ágúst Logi Pétursson hitti rússneska framherjann Roman Pavlyuchenko eftir leik Tottenham og Chelsea síðasltiðið vor. Pavlyuchenko yfirgaf herbúðir Tottenham fyrr í vikunni en hann gekk til liðs við Lokomotiv Moskvu.  


Haraldur, Hrannar og Guðmundur hittu framherjann Mame Biram Diouf í miðbæ Manchester.  Diouf fór frá Manchester United á dögunum en hann gekk til liðs við Hannover í Þýskalandi.


Myndir birtar föstudaginn 27. janúar 2011


Dagur Lárusson, Sindri Rafn Svansson og Úlfar Konráð Svansson hittu Jonjo Shelvey leikmann Liverpool þegar enska U21 árs landsliðið kom til Íslands síðastliðið haust.
Sigurður Hilmar Guðjónsson varaformaður Arsenal klúbbsins á Íslandi hitti Robin van Persie þegar Hollendingur komu til Íslands árið 2009.

Bræðurnir Óskar og Jón Torfi hittu Peter Crouch þegar þeir heimsóttu æfingasvæði Tottenham í mars í fyrra.


Ásgeir Kristján Karlsson hitti Allan Kennedy fyrrum leikmann Liveropol á Players í Kópavogi þar sem þeir horfðu á leik Arsenal og Liverpool.


Myndir birtar föstudaginn 20. janúar 2011


Guðrún Margrét Þórisdóttir hitti Nani á Grand Hótel þegar portúgalska landsliðið kom til Íslands árið 2010.
Sveinn Ævar Stefánsson hitti gamla markaskorarann Teddy Sheringham 4. nóvember síðastliðinn en þeir voru þá báðir í innkaupum í verslunarmiðstöðinni Trafford Centre.

Hallgrímur Kúld hitti markvörðinn David Seaman eftir leik Charlton og Manchester City árið 2003.


Þórður Páll Pálsson hitti David May fyrrum leikmann Manchester United á hóteli í Manchester á síðasta ári.


Myndir birtar föstudaginn 16. desember 2011


Guðni Ólafsson, stuðningsmaður Liverpool, hitti Raul Meireles þegar hann kom til Íslands í fyrra að spila með portúgalska landsliðinu.  Guðni hitti Meireles þegar hann var á Tapas barnum að borða eftir leik ásamt Nani.
Arnþór Hinrik Valgarðsson hitti Andy Cole þegar hann var í skoðunarferð á Old Trafford.  Arnþór fékk mynd af sér með Cole á þeim stað sem hann sat alltaf í búningsklefa liðsins á sínum tíma.

Guðmundur og Hrannar hittu Franco Di Santo framherja Wigan í verslunarmiðstöðinni Trafford Centre í Manchester.  


Kristófer Daði Kristjánsson leikmaður Sindra hitti Gylfa Þór Sigurðsson leikmann Hoffenhem og íslenska landsliðsins á N1-mótinu á Akureyri í sumar.


Myndir birtar föstudaginn 9. desember 2011


Kristján Hafþórsson, Krissi Haff, hitti Cristiano Ronaldo á Grand Hotel þegar portúgalska landsliðið kom til Íslands fyrir rúmu ári síðan.
 

Stefán Gunnar Sigurðsson var hæstánægður þegar hann hitti Jack Rodwell miðjumann Everton.  Stefán fékk mynd af sér með Rodwell þegar hann kom til Íslands með U21 árs landsliði Englands í október síðastliðnum.

Geirlaugur Árni Kristjánsson hitti Robert Green markvörð West Ham á Upton Park árið 2007.


Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi, í góðum gír ásamt Jónasi Hallgrímssyni fyrrum leikmanni og þjálfara Völsungs.


Myndir birtar föstudaginn 25. nóvember 2011


Ásgrímur Ari Hjaltason hitti Lionel Messi leikmann Barcelona og besta leikmann í heimi undanfarin ár.  Ásgrímur hitti Messi í janúar 2010 og fékk mynd af sér með Argentínumanninum.
 

Ásgeir Ásgeirsson mætti snemma á leik Manchester United og Tottenham í apríl árið 2010 og það borgaði sig því hann hitti þá goðsögnina Sir Bobby Charlton.  Jón Valdimar Sævarsson tók þessa mynd af þeim.

Edgar Gylfi Skaale Hjaltason hitti marga leikmenn U21 árs landsliðs Englendinga þega þeir komu til Íslands í síðasta mánuði.  Hér er hann ásamt uppáhalds leikmanni sínum Jordan Henderson en hann áritaði einnig Liverpool treyju fyrir Edgar.


Björgvin og Stefnir fóru ásamt Sigurgeiri á leik WBA og Fulham árið 2010.  Hér eru Björgvin og Stefnir ásamt markverðinum reynda Dean Kiley en hann starfar í dag sem markmannsþjálfari hjá WBA.


Myndir birtar föstudaginn 2. desember 2011


Sævar Þór sá 8-0 sigur Chelsea á Wigan vorið 2010 en hann fékk ferðina í fermingargjöf.  Sævar hitti nokkra leikmenn Chelsea og hér er hann ásamt Michael Essien.
 

Einar Geir Þorsteinsson hitti danska miðjubuffið Thomas Gravesen fyrir utan Hotel Nordica fyrir nokkrum árum.  Gravesen var þá að fara að leika með danska landsliðinu hér á landi.

Eiríkur Viktorsson fékk þann heiður að leiða Gary Neville fyrirliða Manchester United út á völlinn fyrir 4-0 sigur liðsins gegn AC Milan í Meistaradeildinni árið 2010.


Gunnar Steinn Gunnarsson hitti Bjarna Þór Viðarsson og Hólmar Örn Eyjólfsson eftir leik U21 árs landsliðsins gegn Danmörku á EM í sumar.


Myndir birtar föstudaginn 25. nóvember 2011


Ásgrímur Ari Hjaltason hitti Lionel Messi leikmann Barcelona og besta leikmann í heimi undanfarin ár.  Ásgrímur hitti Messi í janúar 2010 og fékk mynd af sér með Argentínumanninum.
 

Ásgeir Ásgeirsson mætti snemma á leik Manchester United og Tottenham í apríl árið 2010 og það borgaði sig því hann hitti þá goðsögnina Sir Bobby Charlton.  Jón Valdimar Sævarsson tók þessa mynd af þeim.

Edgar Gylfi Skaale Hjaltason hitti marga leikmenn U21 árs landsliðs Englendinga þega þeir komu til Íslands í síðasta mánuði.  Hér er hann ásamt uppáhalds leikmanni sínum Jordan Henderson en hann áritaði einnig Liverpool treyju fyrir Edgar.


Björgvin og Stefnir fóru ásamt Sigurgeiri á leik WBA og Fulham árið 2010.  Hér eru Björgvin og Stefnir ásamt markverðinum reynda Dean Kiley en hann starfar í dag sem markmannsþjálfari hjá WBA.


Myndir birtar föstudaginn 18. nóvember 2011


Daníel Már Friðriksson hitti Cristiano Ronaldo á ganginum á Laugardalsvelli eftir leik Íslands og Portúgal í fyrra.  Daníel Már fékk mynd af sér með Ronaldo og portúgalski snillingurinn áritaði einnig mynd fyrir hann.
 

Bræðurnir Óskar og Jón Torfi voru boltasækjarar á leik Tottenham og West Ham á White Hart Lane í mars á þessu ári.  Þeir fengu einnig að fara á æfingu hjá Tottenham þar sem þeir fengu myndir af sér með leikmönnum.  Þar á meðal var Gareth Bale sem er hér með þem félögum.

Kristinn Þór Guðmundsson hitti Steven Gerrard fyrirliða Liverpool á leik liðsins gegn Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðastliðið vor.  Gerrard var ekki með vegna meiðsla og sat því í stúkunni. 


Árshátíð Deloitte á Íslandi var haldin í Heidelberg í Þýskalandi í september síðastliðnum.  Jóel Kristinsson starfsmaður Deloitte hitti þar Ryan Babel leikmann Hoffenheim en hann var staddur í brúðkaupi hjá einum af starfsmönnum félagsins.


Myndir birtar föstudaginn 11. nóvember 2011


Nokkrir Íslendingar hittu úrúgvæsku leikmennina Luis Suarez og Sebastian Coates í miðbæ Liverpool í síðasta mánuði.  Á myndinni eru frá vinstri: Luis Suarez, Tryggvi Örn Gunnarsson, Sebastian Coates, Bjarni Rúnar Heimisson og Guðbjartur Kristinn Ástþórsson.  Heimir Tryggvason tók myndina.
 

Arnar Þór Ingason og félagar hans skelltu sér á stórleik Manchester United og Manchester City á dögunum.  Tveimur dögum fyrir leik fóru þeir að borða á veitingastaðnum San Siro þar sem þeir rákust á Roberto Mancini stjóra Manchester City. Mancini var með stórfjölskyldu sinni en Arnar og félagar fengu mynd með honum eftir matinn.

Hallgrímur Kúld hitti Tony Adams eftir æfingu hjá Portsmouth árið 2008.  Adams, sem var lengi fyrirliði Arsenal, var á þessum tíma knattspyrnustjóri Portsmouth.


Ronald Glenn Jónsson fékk mynd af sér með Nani þegar portúgalska landsliðið lenti í Leifsstöð fyrir leikinn gegn Íslendingum í fyrra.


Myndir birtar föstudaginn 4. nóvember 2011


Ingólfur Árnason hitti Steven Gerrard fyrirliða Liverpool þegar hann var í heimsókn í Manchester og fékk mynd af sér með honum.
 

Hermann Valdi Valbjörnsson rakst á John Terry fyrirliða Chelsea í Siam Park á Tenerife síðastliðið vor, 3 dögum eftir að ensku úrvalsdeildinni lauk.  Faðir John Terry tók þessa mynd af þeim.

Sigurður Hilmar Guðjónsson varaformaður Arsenal klúbbsins á Íslandi hitti Nicklas Bendtner þegar hann kom hingað til lands með danska landsliðinu árið 2006.


Hilmar Þór Guðmundsson, kenndur við Sport.is, hitti Ronny Johnsen fyrrum varnarmann Manchester United þegar norska landsliðið mætti því íslenska á Laugardalsvelli í fyrra.


Myndir birtar föstudaginn 26.mars 2010


Þórður Óskarsson hitti Ron Harris "Chopper" sem ekki þarf að kynna fyrir þeim sem fylgdust með knattspyrnu í Englandi í kringum 1970. Harris lék yfir 600 leiki með Chelsea á sínum tíma.
 

Aron Freyr Sveinbjörsson hitti Eið Smára Guðjohnsen í Húsdýragarðinum og fékk mynd af sér með leikmanninum.

Björn Aaron Valdez og Wayne Rooney. Þeir hittust þegar Björn fór á Old Trafford.


Silja Rán Arnarsdóttir hitti Gareth Barry þegar FH tók á móti Aston Villa árið 2008.


Myndir birtar föstudaginn 19.mars 2010


Ingvi Rafn og Guðbjartur Sindri hittu Gérard Houllier, fyrrum stjóra Liverpool, fyrir leik Manchester United og AC Milan á Old Trafford í síðustu viku.
 

Sólrún ásamt Daniel Agger varnarmanni Liverpool og danska landsliðsins.

Arnór Sindri Sölvason hitti Steve Sidwell í stúkunni á leik FH og Aston Villa árið 2008. Arnór Sindri skellti sér síðan í klippingu eftir leikinn.


Kristinn Þór Rósbergsson hitti á Dwight Yorke í Manchester United Megastore er hann var að árita bók sína fyrir leik Manchester United og Aston Villa á Old Trafford þann 12.desember síðastliðinn.


Myndir birtar föstudaginn 12.mars 2010


Þórður Óskarsson hitti John Terry fyrirliða Chelsea árið 2005 þegar að hann fór ásamt syni sínum á leik liðsins gegn Liverpool. Feðgarnir voru á hótelinu við Stamford Bridge og þeir hittu Terry og fleiri leikmenn nálægt barnum á efri hæð hótelsins. Þá voru leikmennirnir að koma af fundi í morgunverðarsalnum.
 

Ívar Orri og Karl Eiríksson hittu tvífara Rafael Benitez knattspyrnustjóra Liverpool. Á myndinni er Ívar Orri með tvífaranum.

Ólafur Ólafsson hitti Luis Garcia á veitingastað í Liverpool eftir leik Liverpool og Everton árið 2005. Þess má geta að Garcia skoraði sigurmarkið í leiknum.


.


Myndir birtar föstudaginn 5.mars 2010


Snorri Magnússon, Hafþór Hilmarsson, Viðar Bjarnason Pálmi Ólafur Theódórsson, Marteinn Ægisson og Helgi Þór Gunnarsson ásamt Salif Diao. Gunnar Örn Ástráðsson tók myndina fyrir leik Stoke og Arsenal um síðustu helgi.
 

Guðrún Ósk Guðmundsdóttir var svo heppin að hitta John Carew þegar hann kom til landsins með Aston Villa og hún fékk mynd af sér með Norðmanninum.

Ólafur Birgisson og Kolla Björnsdóttir fengu Dirk Kuyt í heimsókn í brúðkaupið sitt síðasta sumar þegar Hollenska landsliðið spilaði hér.


Arnar Júlíusson hitti Hermann Hreiðarsson þegar að íslenski landsliðsfyrirliðinn hélt golfmót í Vestmannaeyjum í fyrra.


Myndir birtar föstudaginn 26.febrúar 2010


Guðmundur á góðri stundu með hinum hárprúða Carlos Valderrama, einum frægasta leikmanni Kolumbíu frá upphafi.
 

Ólafur Óafsson og Ívar Jasonarson ásamt Xabi Alonso. Myndin er tekin á veitingahúsi eftir sigur Liverpool á Everton árið 2005.

Jóhannes Kjartansson hitti fyrrum landsliðsmanninn Ríkharð Daðason á dögunum.


Fanný Ragna Gröndal hitti Guðlaug Victor Pálsson leikmann Liverpool fyrir utan Anfield fyrir leik Liverpool og Everton.


Myndir birtar föstudaginn 19.febrúar 2010


Hörður Ágústsson, leikmaður Berserkja, hitti Robbie Keane á White Hart Lane heimavelli Tottenham. Myndin var tekin þegar Tottenhamklúbburinn á Íslandi veitti Keane verðlaun sem Leikmaður ársins að mati stuðningsmanna Tottenham á Íslandi. Þess má geta að myndin er tekin um klukkutíma fyrir leik Tottenham og Arsenal sem endaði 1-1 með marki Jermaine Jenas á 94. mínútu sem gladdi lýðinn.
 

Eftir 3-2 sigur Arsenal á Sunderland haustið 2007 hittu þrír Íslendingar á Niall Quinn formann Sunderland. Quinn lék á árum áður með Arsenal, Manchester City, Sunderland og írska landsliðinu. Á myndinni eru Rögnvar Ragnarsson, Rögvnvar Grétarsson, Niall Quinn og Grétar Rögnvarsson.

Jósef Halldór Þorgeirsson og Ian Rush á árshátíð Liverpool klúbbsins. Jósef Halldór var staddur í fermingaveislu á hæð fyrir ofan og fékk mynd af sér með Rush sem skoraði ófá mörkin fyrir Liverpool á sínum tíma.


Albert Brynjar Ingason hitti á Ragnar Sigurðsson, varnarmann IFK Gautaborg íslenska landsliðsins, en þeir hittust í bænum og ræddu málin.


 


Myndir birtar föstudaginn 12.febrúar 2010


Arnar Júlíusson hitti Sol Campbell, varnarmann Arsenal, þegar að hann tók þátt í Herminator golfmótinu í Eyjum síðastliðið sumar. Campbell var mjög vinalegur og gaf sér smá tíma að spjalla við 10 ára gutta um Arsenal og fótbolta.
 

Fannar Freyr Magnússon hitti Nathan Delfouneso framherjann unga í liði Aston Villa.

Tómas Geir og faðir hans Hörður Magnússon ásamt Phil Thompson fyrrum leikmanni og aðstoðarstjóra Liverpool. Myndin er tekinn fyrir leik Liverpool og Aston Villa í fyrra.


Pétur Jónsson (til vinstri ) og Hilmar Sævarsson (til hægri) hittu Gylfa Þór Sigurðsson leikmann Reading á lestarstöð í London í vetur. Gylfi var á leið heim til sín úr búðarrápi með kærustunni sinni þegar þeir hittu á hann.


 


Myndir birtar föstudaginn 5.febrúar 2010


Egill Heiðar Gíslason fór og heimsótti Roman Abramovich eiganda Chelsea fyrir nokkrum árum. Egill fékk að sjálfsögðu mynd af sér með Abramovich.
 

Sólrún Ósk, Sædís María, Sara Ósk, Sindri Snær og Aníta Ósk hittu landliðsfyrirliðann Hermann Hreiðarsson eftir landsleik gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli 5.september síðastliðinn.

Sverrir Birgir Sverrisson hitti Dirk Kuyt á hóteli hollenska landsliðsins eftir leik liðsins gegn Íslendingum í sumar. Sverrir fékk mynd af sér með Kuyt og þá fékk hann að eiga treyjuna sem að leikmaðurinn lék í gegn Íslendingum.


Elísabet Halldórsdóttr hitti Alan Kennedy fyrrum leikmann Liverpool, Newcastle og Sunderland en myndin er tekin í Liverpool.


 


Myndir birtar föstudaginn 29.janúar 2010


Hjálmtýr Rúnar hitti Darren Fletcher, miðjumann Manchester United, í Leifsstöð þegar að skoska landsliðið kom hingað til lands árið 2008.
 

Haukur Már Hjartarson (til hægri) og félagi hans hittu Dirk Kuyt eftir landsleik Íslands og Hollands í fyrra en þeir félagar voru að vinna í gæslu á vellinum.

Marinó Heiðar Svavarsson fór að sjá sína menn í Everton vinna Liverpool 3-0 árið 2006. Marinó var hæstánægður með ferðina en hann fékk mynd af sér með Tim Cahil sem gaf sér einnig tíma til að spjalla við Marinó.


Hinn 13 ára gamli Fannar og Benedikt sjö ára bróðir hans fengu mynd af sér með Brynjari Birni Gunnarssyni, Gylfa Sigurðssyni og Ívari Ingimarssyni eftir leik Coventry og Reading í nóvember síðastliðnum.


 


Myndir birtar föstudaginn 15.janúar 2010


Anton Egilsson ásamt Dwight Yorke. Myndin er nokkuð gömul en Yorke lék með Manchester United þegar að hún var tekinn.
 

Bjarki Kristjánsson hitti finnska miðjumanninn Teemu Tainio fyrir leik Tottenham og Reading á White Hart Lane í apríl 2007. Tainio leikur í dag með Sunderland.

Anika Laufey Baldursdóttir og Javier Mascherano miðjumaður Liverpool og fyrirliði argentínska landsliðsins.


Viðar Aron hitti landsliðsfyrirliðann Hermann Hreiðarsson á Shellmótinu í Vestmannaeyjum.


 


Myndir birtar föstudaginn 18.desember 2009


Áslaug Magnúsdóttir, Sandra Júlía Bernburg og Andrea Guðmundsdóttir ásamt hetjunni sinni Ryan Babel sem þær hittu á Laugaveginum síðastliðið sumar.
 

Elísabet Halldórsdóttir hitti Xabi Alonso þegar að Spánverjar komu til Íslands árið 2006. Hún fékk mynd af sér með Alonso og einnig eiginhandaráritun.

Ísak Máni Wíum var að keppa með 6. flokki ÍR á Shellmótinu í Eyjum síðastliðið sumar og átti 10 ára afmæli á fyrsta keppnisdegi mótsins. Á lokadeginum hitti hann Sol Campbell sem var að keppa á golfmóti sem Hermann Hreiðarsson stóð fyrir. Campbell gaf sér tíma frá golfinu fyrir myndatöku og gaf einnig eiginhandaráritun.


Egill Valur Michelsen hitti Grétar Rafn Steinsson, leikmann Bolton og íslenska landsliðsins, á 17.júní í fyrra. Egill fékk mynd af sér með Grétari Rafni.


 


Myndir birtar föstudaginn 11.desember 2009


Garðar Haukur og Nick ásamt Marcel Desailly fyrrum leikmanni Chelsea. Myndin er tekin á Chelsea hótelinu eftir leik Chelsea og Manchester United á Stamford Bridge í apríl árið 2007. Leikurinn fór 2-1 fyrir Chelsea.
 

Snorri Kristjánsson ásamt John Aldridge og Alan Kennedy fyrrum leikmönnum Liverpool. Myndin er tekin á Aldo's bar í Liverpool en staðurinn er í eigu John Aldridge. Myndin er tekin degi fyrir leik Liverpool og Barcelona í Meistaradeildinni.

Grétar Rögnvaldsson ásamt Charlie George fyrrum leikmanni Arsenal. Grétar hitti George í Arsenal búðinni fyrir leik gegn Sunderland haustið 2007.


Þórður Jón Jóhannesson, ungur leikmaður úr Haukum, er hér ásamt Hólmari Eyjólfssyni varnarmanni West Ham og U21 árs landsliðsins. Myndin er tekin í maí síðastliðnum eftir að þeir höfðu farið út að borða.


 


Myndir birtar föstudaginn 4.desember 2009


Grindvíkingurinn Kristján Ásgeirsson og Ryan Giggs á veitingastað í Manchester United. Myndin er tekinn eftir leik Manchester United og Arsenal þar sem að United hafði betur 2-1.
 

Sigríður Ólafsdóttir (til vinstri) og Kristín Sverrisdóttir (til hægri) ásamt Ryan Babel leikmanni Liverpool. Þær hittu Babel þegar að hollenska landsliðið kom til Íslands í júní síðastliðnum.

Jón Óskar ásamt Eiði Smára Guðjohnsen en þessi mynd var tekinn á N1 mótinu á Akureyri.


Baldur Kristjánsson hitti Davíð Þór Viðarsson þegar að hann var á reynslu í Belgíu í síðasta mánuði. Baldur er mikill FH-ingur og þótti honum skemmtileg tilviljun að hitta fyrirliða liðsins í Belgíu en Davíð er nú farinn frá Fimleikafélaginu til Öster í Svíþjóð.


 


Myndir birtar föstudaginn 27. nóvember 2009


 


Slapp
banner
banner