Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fantasy deildin: Hvernig skal stilla upp liðinu?
Fantasy deild Úrvals Útsýnar og Fótbolta.net hófst á nýjan leik fyrir helgina og eru þúsundir skráðir til leiks í deildinni enda hægt að vinna til frábærra verðlauna í formi utanlandarferðar og gjafabréfa.

Leikurinn virkar þannig að hver spilari fær ákveðinn mikinn pening til leikmannakaupa og fær að kaupa fimmtán leikmenn, ellefu byrjunarliðsmenn, varamarkvörð og þrjá varamenn. Á milli umferða er svo hægt að kaupa og selja leikmenn, en hver leikmannakaup umfram leyfðan fjölda kosta þig fjögur stig í leiknum.

Það eru til margar formúlur sem segja til um hvernig er best að velja leikmannahópinn sinn, en öruggasta leiðin til að vera með gott lið er að velja fimmtán leikmenn sem eru byrjunarliðsmenn hjá sínum liðum. Það er alveg tilgangslaust að vera með leikmenn í hóp hjá sér sem fá engin stig því þeir spila ekkert eða óreglulega með liðinu sínu, þetta gildir þá líka um leikmenn sem eiga það til að meiðast oft.

Sumir velja að kaupa fjórar til fimm stórstjörnur sem skora nánast alltaf stig og kosta mjög mikinn pening, eins og Robin van Persie, Gareth Bale, David Silva, Frank Lampard og fleiri. Aðrir velja að hafa liðið sitt jafnara með sterkum mönnum sem fá yfirleitt mörg stig en eru þó ekki stórstjörnur, eins og Clint Dempsey, Daniel Sturridge, Yakubu, Demba Ba, Stephane Sessegnon og Luca Modric.

Ef farið er fyrri leiðina og keypt stórstjörnurnar þá verður að kaupa mikið af hræódýrum leikmönnum, en þeir hafa verið að reynast gríðarlega vel þetta tímabil, sérstaklega varnarmenn Newcastle United og Liverpool og miðjumenn Swansea.

Þegar valið er í lið þá verður að huga að ýmsu.

Markmenn verða að hafa sterka vörn fyrir framan sig og vera helst búnir að fá lítið af mörkum á sig í deildinni, eða vera alræmdir vítabanar, eins og Ali Al-Habsi hjá Wigan sem er sjöundi-stigahæsti markmaðurinn í Fantasy þrátt fyrir að vera búinn að fá flest mörk á sig í deildinni. Tim Krul hjá Newcastle og Michael Vorm hjá Swansea eru mjög vinsælir og ódýrir markmenn sem hafa verið að spila mjög vel á tímabilinu. Annars er alltaf öruggast að kaupa einn dýran markvörð í toppliði með sterka vörn fyrir framan sig. Joe Hart, Brad Friedel og Pepe Reina eru góð dæmi um sterka markmenn með öfluga varnarmenn fyrir framan sig.

Varnarmenn eru mjög mikilvægir í þessum leik. Nokkur lið í deildinni nota bakverðina sína til að taka föst leikatriði, en Ryan Taylor bakvörður Newcastle fær oft stoðsendingar eftir hornspyrnur og skorar af og til úr aukaspyrnu. Svipaða sögu er hægt að segja um Jose Enrique hjá Liverpool. Yfirleitt eru bakverðir stigahærri en miðverðir vegna þess að þeir eru sóknarsinnaðari og mun tæknilegri leikmenn og koma þá oft með góðar fyrirgjafir og fá stoðsendingar fyrir, en því má ekki gleyma að sterkir miðverðir sem skora reglulega eftir föst leikatriði eru góður kostur. Góð dæmi um þannig miðverði eru Vincent Kompany og John Terry.

Miðjumenn mega helst ekki vera varnarsinnaðir leikmenn á borð við Lucas Leiva, Ramires eða Michael Carrick, vegna þess að þannig leikmenn skora sjaldan, eiga lítið af stoðsendingum og fá reglulega spjöld sem gefa mínusstig. Framliggjandi miðjumenn eru yfirleitt besti kosturinn ásamt kantmönnum, en allra bestu kostirnir eru eflaust leikmenn sem eru skráðir sem miðjumenn í Fantasy deildinni en spila sem sóknarmenn með sínu félagsliði. Stephane Sessegnon, Scott Sinclair, Jon Walters og Theo Walcott eru nokkur góð dæmi. Annars eru stigahæstu miðjumennirnir yfirleitt leiðtogar og skærustu stjörnur sinna liða, eins og Gareth Bale, David Silva, Clint Dempsey og Nani. Oft er gott að velja miðjumenn sem eru fyrirliðar eða leiðtogar sinna liða og taka föst leikatriði, til dæmis Steven Gerrard, Chris Brunt og Sebastian Larsson.

Sóknarmenn eru líklega flóknasti partur leiksins. Hvernig er hægt að vita hvort sóknarmaður haldi forminu sínu áfram út tímabilið? Sergio Aguero, Wayne Rooney og Emmanuel Adebayor eru frábær dæmi um leikmenn sem voru í frábæru formi og alltaf skorandi en misstu það svo niður. Eini sóknarmaðurinn í deildinni sem hefur verið stöðugur markaskorari er Robin van Persie hjá Arsenal, en Demba Ba hjá Newcastle fer þó að nálgast hann. Ba er einmitt eitt stærsta spurninarmerki leiksins, en hann var með Senegal í Afríkukeppninni þar sem hann þótti spila virkilega illa, enda datt landsliðið úr riðlakeppninni með ekkert stig úr þremur leikjum gegn mjög auðveldum andstæðingum. Spurning hvort hann komi til baka í sama formi og hann var fyrir keppnina eða hvort hann verði þreyttur og fúll útaf slæmu gengi.

Varamenn verða helst allir að vera spilandi leikmenn og mega ekki bara vera ódýrustu leikmennirnir sem hægt er að finna vegna þess að það er ávísun á mínusstig og vesen. Varamenn verða að spila og helst að fá stig og það eru til margar ástæður fyrir því. Ef leikmaður í byrjunarliðinu þínu meiðist fyrir leik eða verður veikur þá er ekki gaman að missa til dæmis John Terry úr liðinu og fá þá Ronnie Stam, ódýran varnarmann Wigan Athletic, sem á útileik gegn Manchester City í liðið í staðinn. Svo skíttapar Wigan og þá er Stam búinn að færa þér nokkur mínusstig, eða 0 stig í besta falli. Alltaf sniðugt að vera með ódýra varamenn sem eru þó í fínum liðum, eins og Danny Simpson í Newcastle, Nathan Dyer og Danny Graham í Swansea og Grant Holt sóknarmann Norwich. Önnur ástæða fyrir því að vera með góða varamenn er sú að ef þú ferð til útlanda eða missir netið í viku eða hefur ekki tíma fyrir fantasy liðið þitt, þá er lúmskt sniðugt að vera með góða varamenn bara til öryggis svo allt fari nú ekki í ruglið meðan þú ert í burtu.
Slapp
banner