Ragnar Sigurðsson lék fyrstu 45 mínúturnar með FC Kaupmannahöfn þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Samuel Eto´o og félaga í Anzhi Makhachkala i á æfingamóti á Spáni í gær.
,,Þetta var bara gaman. Hann (Eto´o) er gamall Barcelona spilari en hann sýndi ekki mikið í dag. Ég held að hann hafi ekki mikið verið að nenna þessu," sagði Ragnar við Fótbolta.net eftir leikinn.
Ragnar fór frá Gautaborg til FC Kaupmannahafnar síðastliðið sumar og hann er ánægður með þá ákvörðun.
,,Ég er mjög sáttur með skiptin og gæti ekki verið ánægðari með þetta. Þetta er miklu sterkari lið, með hærri standard og markmið," sagði Ragnar sem kann vel við að búa í Kaupmannahöfn.
,,Kaupmannahöfn er borgin sem allir á Íslandi fara til þegar þeir eru í fríi og þetta er algjör snilld. Það er kannski búinn að vera of mikill gestagangur, það er alltaf einhver hérna en það er bara gaman."
FC Kaupmannahöfn fékk á dögunum miðvörðinn Kris Stadsgaard til liðs við sig frá Malaga en hann byrjaði á bekknum í gær. Ragnar segist ekki hræðast samkeppnina.
,,Ég er ekkert hræddur við hana, það er alltaf gott að vera með samkeppni til að vera á tánum. Ég átti reyndar skítaskalla til baka í dag sem varð næstum því mark út úr en það kemur í ljós hvernig þetta verður," sagði Ragnar.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























