Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 05:55
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía: Leikir helgarinnar
Að öllu óbreyttu fer fram heil umferð í ítölsku A-deildinni um helgina en í vikunni var fjórum leikjum frestað vegna mikillar snjókomu á norðanverðu landinu. Til að reyna að koma í veg fyrir frestanir um helgina verða allir leikirnir spilaðir að degi til.

Á morgun fær Cesena lið Catania í heimsók en Roma og Inter mætast í áhugaverðum leik á sunnudag. Sá leikur átti upphaflega að vera á morgun.

Á sunnudaginn verður nóg um að vera en þá mætast Genoa og Lazio fyrir hádegi. Hinir leikirnir fara síðan fram klukkan 14:00, þar á meðal viðureign Juventus og Siena, og loks fær AC Milan Napoli í heimsókn.

Laugardagur:
14:00 Cesena – Catania

Sunnudagur:
11:30 Genoa – Lazio
14:00 Chievo – Parma
14:00 Fiorentina – Udinese
14:00 Juventus – Siena
14:00 Lecce – Bologna
14:00 Novara – Cagliari
14:00 Palermo – Atalanta
14:00 AC Milan - Napoli
14:00 Roma – Inter
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner