Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 02. febrúar 2012 21:40
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalía: Novara tapaði fimmta leiknum í röð
Novara 1 - 2 Chievo
0-1 Sergio Pellissier ('33 )
0-2 Cyril Thereau ('78 )
1-2 Giuseppe Mascara ('79 )

Novara og Chievo mættust í kvöld í ítölsku A-deildinni þar sem gestirnir í Chievo höfðu betur 2-1.

Sergio Pellissier kom Chievo yfir eftir rúman hálftíma leik og það var síðan Cyril Thereau sem tókst að auka muninn fyrir Chievo á 78. mínútu leiksins.

Aðeins mínútu síðar minnkaði Novara muninn aftur í eitt mark, en það gerði sóknarmaðurinn Giuseppe Mascara og kom lífi í leikinn.

Nær komust heimamenn þó ekki og Novara tapaði þar með sínum fimmta leik í röð. Novara er lang neðst í deildinni með tólf stig á meðan Chievo klifraði upp í tíunda sætið.
Slapp
banner
banner
banner