Skrifaði undir hjá CSKA Sofia fyrir aðeins 15 dögum
CSKA Sofia hefur rift samningnum við Carlos Diogo, fyrrum varnarmann Real Madrid sem hafði skrifað undir samning við félagið út tímabilið fyrir aðeins 15 dögum síðan.
Þessum 28. ára gamla Úrúgvæa átti að hafa liðið illa í Búlgaríu og sagðist vilja spila í Brasilíu. Forráðamenn félagsins uppfylltu ósk hans og riftu samningnum samstundis.
Þessum 28. ára gamla Úrúgvæa átti að hafa liðið illa í Búlgaríu og sagðist vilja spila í Brasilíu. Forráðamenn félagsins uppfylltu ósk hans og riftu samningnum samstundis.
,,Það er engin ástæða að halda honum í Búlgaríu gegn vilja hans,” sagði Ventsislav Zhivkov, framkvæmdastjóri.
Diogo var í herbúðum Real Madrid í tvö ár áður en hann gekk í raðir Real Zaragoza árið 2007 þar sem hann var lykilmaður í liðinu um tíma.
Samningur hans við Real Zaragoza rann síðan út síðasta sumar og hafði hann verið án félags þar til CSKA Sofia bauð honum samning síðastliðinn mánuð.
Talið er að Diogo muni nú semja við Palmeiras þar sem Luiz Felipe Scolari er við stjórnvöllinn.




