Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 07:43
Hafliði Breiðfjörð
Nesta fer ekki í Grindavík þrátt fyrir fréttatilkynninguna
Grindavík sendi fjölmiðlum fréttatilkynningu í síðustu viku og boðaði að Matarr Jobe væri genginn í raðir félagsins frá Val og hafi skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Nú er ljóst að hann mun ekki fara og verður áfram hjá Val á næstu leiktíð.

,,Landsliðsmaður Gambíu, Matarr Jobe (kallaður Nesta), hefur gengið til liðs við Grindavík frá Val. Nesta, sem kom til Vals fyrir 18 mánuðum, er hafsent, fæddur 1992 og var fyrirliði U-17 ára liðs Gambíu sem urðu Afríkumeistarar 2009. Samningurinn við Nesta er til þriggja ára," stóð í fréttatilkynningu frá Grindavík á fimmtudaginn í síðustu viku.

Það kom því á óvart að sjá Nesta koma inná í lið Vals gegn Fjölni í Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi, sléttri viku eftir að Grindvíkingar hrósuðu happi um að næla í piltinn.

,,Nesta var á leiðinni til Grindavíkur og það var komið ákveðið samkomulag um þau vistaskipti, en þau drógust á langinn og það endaði með því að það varð að samkomulagi að hann verði áfram í Val. Það breytist ekki og hann verður áfram í Val," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Vals við Fótbolta.net eftir leikinn.

Matarr Jobe gengir gjarnan gælunafninu Nesta en hann verður tvítugur á árinu. Hann var lánaður til Víkings frá Ólafsvík í 1. deildina í sumar og lék þá 13 leiki og skoraði eitt mark. Hans fyrstu meistaraflokksleikir.

Hann er landsliðsmaður Gambíu sem gerir þriggja ára samning við Grindavík. Nesta, sem kom til Vals fyrir 18 mánuðum, er hafsent, fæddur 1992 og var fyrirliði U-17 ára liðs Gambíu sem urðu Afríkumeistarar 2009.
Slapp
banner
banner