Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 10:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Ribery hefði viljað fá nýja leikmenn til Bayern
Franck Ribery, leikmaður Bayern München, er svekktur að félagið hafi ekki breikkað hópinn janúarglugganum.

Bayern ákvað að treysta á þá leikmenn sem eru til staðar en þrátt fyrir marga sterka leikmenn er leikmannahópur félagsins með þeim minni í þýsku úrvalsdeildinni.

Ribery hefur þá helst áhyggjur ef nokkrir lykilmenn myndu meiðast en þá ætti félagið ekki nægilega góða leikmenn til að fylla í skarðið.

,,Ég held að við munum lenda í vandræðum ef tveir eða þrír leikmenn meiðast,” sagði Ribery.

,,Við erum ekki með öflugan bekk og erum ekki með sérlega gott varalið. En ég er ekki forsetinn eða þjálfarinn, ég er bara leikmaður.”
Slapp
banner