Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 08:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Stuðningsmenn Liverpool fá færri aðgöngumiða á Old Trafford
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liverpool hefur fengið aðgöngumiða úthlutað fyrir viðureignina gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á Old Trafford þann 11. febrúar næstkomandi.

Miðunum fyrir þann leik hefur verið fækkað um tæplega þriðjung fyrir gestaliðið og því eru 2.100 miðar í boði fyrir stuðningsmenn Liverpool í stað 3.000.

Þetta verður fyrsti leikur Luis Suarez með Liverpool á útivelli eftir átta leikja bannið sem hann hlaut fyrir kynþattaníð hans í garð Patrice Evra, leikmann Manchester United.

Þetta er gert til að tryggja öryggi allra áhorfenda á vellinum en eins og flestir vita þá hefur Suarez-Evra málið vakið upp miklar deilur milli stuðningsmanna beggja liða.
Slapp