,,Þetta er pirrandi," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Vals eftir 5-0 sigur á Fjölni í Reykjavíkurmótinu í gær en sigurinn dugði þeim ekki til að komast í undanúrslit því aðrir leikir Fjölnis voru dæmdir þeim tapaðir þar sem þeir tefldu fram ólöglegum leikmanni. Þannig högnuðust andstæðingarnir, Fylkir og Þróttur.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 5 Valur
Kristján grínaðist með að Fjölnir hafi ekki fengið félagaskipti fyrir leikmanninn því Ásmundur Arnarsson fyrrverandi þjálfari liðsins hafi tekið faxtækið með sér þegar hann hætti og tók við Fylki en Ágúst Þór Gylfason tók við af honum.
,,Það er ferlegt þegar Ási tekur faxtækið með sér upp í Árbæ og Gústi ekki með sitt svo þeir klikka á faxinu," sagði Kristján.
,,Þetta er ferlega pirrandi að svona skuli hafa gerst, en þetta eru bara mannleg mistök."
Nánar er rætt við Kristján í sjónvarpinu hér að ofan.




















