,,Það er sárt að tapa svona stórt, við vorum inni í leiknum framan af og sprækir en þeir eru bara líkamlega sterkari en við eins og staðan er í dag. Alvöru karlmannalið sem við höndlum ekki," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis eftir 5-0 tap gegn Val í Reykjavíkurmótinu í gær.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 5 Valur
Ljóst var fyrir leikinn að Fjölnir væri úr leik í mótinu því þeir leikir sem þeir höfðu spilað voru þeim dæmdir tapaðir því þeir tefldu fram leikmanni sem átti eftir að fá félagaskipti.
,,Það var mjög svekkkjandi en svona er þetta og menn taka bara á því sem gerðu mistök. Við lærum á þessu allir. Vonandi gerist þetta ekki í sumar."
Nánar er rætt við Ágúst í sjónvarpinu hér að ofan en þar segist hann þurfa að styrkja liðið með reyndum leikmönnum.
,,Við vonumst til að það verði einhverjar styrkingar, 2-3 leikmenn, það er ekki vitað hverjir þeir verða en við verðum með augun opin. Það þurfa að vera menn sem styrkja liðið og hugsanlega einhverjir alvöru karlmenn sem vilja koma inn í liðið, berja kassann og taka á móti þessu."























