Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 09:30
Elvar Geir Magnússon
Pressað á að bandið verði tekið af John Terry
Enska knattspyrnusambandið fær pressu víðsvegar að varðandi fyrirliðahlutverk John Terry hjá landsliðinu. Mörgum þykir ekki rétt að Terry sé fyrirliði Englands meðan hans bíða réttarhöld vegna ásakana um kynþáttaníð.

Margir málsmetandi menn í fótboltaheiminum hafa tjáð sig opinberlega og sagt að endurskoða verði val á fyrirliða í ljósi stöðunnar.

Steven Howard, íþróttaritstjóri The Sun, skrifar pistil um málið sem birtur er í morgun. Þar veltir hann upp þeirri spurningu hvort Terry sé stætt á því að vera áfram fyrirliði ef Rio Ferdinand neitar að taka í höndina á honum fyrir leik Chelsea og Manchester United á sunnudag.

Anton Ferdinand, bróðir Rio, er maðurinn sem ásakar Terry um kynþáttaníð. Rio hefur leikið lykilhlutverk í enska landsliðinu um margra ára skeið og gæti verið í hópnum sem valinn verður fyrir Evrópumót landsliða á komandi sumri.

Í raun veltir Howard upp enn stærri spurningu: Er hægt að velja Terry í leikmannahópinn sem fer á EM?

Á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook settum við inn könnun í gær: Er rétt að John Terry verði tekinn með á Evrópumótið í sumar vegna þeirra ásakana sem hvíla á honum?

57% lesenda Fótbolta.net telja að Terry eigi með réttu ekki að vera valinn í hópinn í ljósi stöðunnar. Aðeins 19% telja að hann eigi að vera fyrirliði Englands í sumar. Ljóst er að punkturinn hefur ekki verið settur fyrir aftan þessa umræðu.



Er rétt að John Terry verði tekinn með á Evrópumótið í sumar vegna þeirra ásakana sem hvíla á honum?
19%: Já (78)
23% Já, en ekki sem fyrirliði (95)
57% Nei (232)

Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.
Slapp
banner