Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 10:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Arteta: Þurfum að berjast um sæti í Meistaradeildinni
Mikael Arteta, leikmaður Arsenal, segir að andrúmsloftið í búningsherberginu hafi verið þrúgandi eftir jafnteflisleikinn gegn Bolton fyrr í vikunni.

Arsenal hefur aðeins fengið eitt stig af tólf mögulegum í síðustu fjórum leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Félagið er í sjöunda sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Chelsea í fjórða sætinu.

Arteta von á harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en hann telur að liðið sé í stakk búið til að takast á við þeirri baráttu.

,,Við hefðum átt að sigra Bolton, við fengum ótal færi til að vinna leikinn í fyrri hálfleik en enn og aftur náðum við ekki að nýta okkur þau,” sagði Arteta.

,,Ef þú nýtir ekki færin, verður þetta alltaf erfitt. Þetta er ekki nógu gott. Við erum með þá leikmenn og þau gæði sem þarf til að safna stigum.”

,,Það verður erfitt að enda í efstu fjórum sætunum en ég held að við höfum gæðin og viljan til að gera það. Ég veit hversu góðir við erum en við verðum að sýna það, við þurfum að berjast.”

Næsti leikur Arsenal er á morgun þegar liðið fær Blackburn í heimsókn.
Slapp
banner
banner