Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 11:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Luis Suarez til Juventus?
Powerade
Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn hafi lokað fyrr í vikunni er nóg um að vera í slúðrinu.



Umboðsmenn Carlos Tevez vilja ræða við Manchester City í von um að félagið leyfi Argentínumanninum að fara til Rússlands. Félagaskiptaglugginn í Rússlandi lokar ekki fyrr en eftir þrjár vikur en Anzhi Makhachkala hefur áhuga á Tevez. (Daily Mirror)

Luis Suarez er óvænt á óskalista Juventus en félagið vill fá hann til að fylla skarð Alessandro Del Piero sem er á förum í sumar. (Daily Star)

Real Madrid ætlar að safna fé til að fá Sergio Aguero með því að selja Gonzalo Higuain til Chelsea í sumar. (Daily Mail)

Xherdan Shaqiri, miðjumaður Basel, er á óskalista Zenit St Pétursborg en hann hefur einnig verið orðaður við Manchester United. (Talksport)

Roberto Mancini er að fylgjast með Mamadou Sakho varnarmanni PSG. (Inside Futbol)

Arsenal hefur spurst fyrir um Javi Garcia miðjumann Benfica. (The Times)

Jose Mourinho er til í að taka aftur við Chelsea en hann vill hafa fulla stjórn á því sem gerist hjá félaginu. (The Sun)

Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, segist leyfa leikmönnum að hafa sitt að segja hjá félaginu þar sem hann er sjálfur svo ungur þjálfari. (Daily Star)

Stuðningsmenn West Ham og Millwall hafa fengið þau skilaboð að haga sér í leik liðanna á morgun til að koma í veg fyrir ólæti líkt og síðast þegar liðin mættust á Upton Park. (The Sun)

Liverpool ætlar að reyna að fá Mauricio Isla frá Udinese í sumar. (Talksport)

Koma David Pizarro til Manchester City gæti orðið til þess að Owen Hargreaves fari frá félaginu. (Manchester Evening News)

Louis Saha segir að David Moyes hafi bjargað ferli sínum í úrvalsdeildinni með því að hafa trú á sér þrátt fyrir mikil meiðsli á ferlinum. (Liverpool Echo)

Stuðningsmenn Arsenal ætla að mótmæla slöku gengi liðsins að undanförnu í leiknum gegn Blackburn á morgun. Stuðningsmennirnir ætla að setja svartan ruslapoka yfir öll auð sæti á Emirates leikvanginum til að sýna hversu mörg sæti eru auð á vellinum. (Daily Mirror)
Slapp
banner