Heimild: Sky
Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að svipta John Terry fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu. Mikið hefur verið fjallað um mál Terry í enskum fjölmiðlum undanfarna daga en hans bíða réttarhöld í júlí vegna ásakana um meint kynþáttaníð.
,,Terry vreður ekki fyrirliði enska landsliðsins fyrr en búið er að taka fyrir ásakanir á hendur honum," sagði í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu í dag.
Terry er sakaður um að hafa verið með kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand í leik gegn QPR í október síðastliðnum.
Terry lýst yfir sakleysi sínu í vikunni og í kjölfarið var ákveðið að fresta réttarhöldum þar til 9. júlí eða eftir að Evrópumótinu lýkur.
Enska knattspyrnusambandið hefur hins vegar ákveðið að taka fyrirliðabandið af Terry og ljóst er að hann mun ekki leiða Englendinga á EM í sumar.
Þetta er ekki í fyrsta skpiti sem Terry missir fyrirliðabandið því hann var sviptur fyrirliðabandinu í febrúar árið 2010 eftir að fréttir bárust af framhjáldi hans með fyrrum eiginkonu Wayne Bridge.
Rio Ferdinand tók við fyrirliðabandinu þá en Terry var gerður aftur að landsliðsfyrirliða nokkrum mánuðum síðar.
Rio gæti tekið aftur við fyrirliðabandinu núna en hann er bróðir Anton Ferdinand sem hefur sakað Terry um kynþáttafordóma.
Næsti leikur enska landsliðsins er vináttuleikur gegn Hollendingum 29. febrúar en auk Rio Ferdinand hafa Steven Gerrard og Frank Lampard verið orðaðir við fyrirliðastöðuna.




