Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 20:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Bolton 
Grétar Rafn: Kannski stærsti leikurinn á tímabilinu
Grétar Rafn Steinsson vonast til að Bolton nái að fylgja eftir góðu gengi í undanförnum leikjum þegar liðið mætir Norwich um helgina. Bolton hefur unnið þrjá heimaleiki að undanförnu og gert eitt jafntefli en liðið fer á útivöll gegn Norwich á morgun.

,,Við erum á góðu skriði í augnablikinu en við verðum að halda áfram. Við eigum mikilvægan leik á laugardag, kannski stærsta leikinn á tímabilinu, og við þurfum að undirbúa okkur og halda áfram að hala inn stigum," sagði Grétar Rafn.

,,Leikmennirnir er að njóta þess að spila í augnablikinu. Hins vegar verðum við að virða önnur lið og virða deildina því að þetta er erfiðasta deild í heimi."

,,Jafnvel þó að við höfum staðið okkur vel hingað til þá verðum við að standa okkur þegar við mætum liðum sem eru í kringum okkur í töflunni. Við verðum að taka stig af Norwich svo við getum komist nær þeim og farið að horfa upp á við frekar en niður á við."


Grétar meiddist lítillega í markalausa jafnteflinu gegn Arsenal í fyrrakvöld og er ólíklegt að hann geti spilað á morgun.
Slapp
banner
banner