Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 03. febrúar 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Darren Bent: Hlægilegt að orða mig við Liverpool
Darren Bent, framherji Aston Villa, segist ekki hafa íhugað að yfirgefa herbúðir félagsins í janúar. Þessi 27 ára gamli leikmaður var meðal annars orðaður við Liverpool en hann segir ekkert hafa verið til í þeim orðrómi.

,,Þetta var hlægilegt. Ég vissi alltaf að ég yrði áfram hjá Villa," sagði Bent sem skoraði hundraðasta mark sitt í ensku úrvalsdeildinni í vikunni.

,,Ég hef sagt það áður að ég vil vera áfram hjá Villa í nokkur ár og koma ferlinum á alvöru flug þegar ég spila hjá Aston Villa."

,,Ég er upp með mér að vera orðaður við félög eins og Liverpool en á sama tíma vissi ég alltaf að ég yrði hér eftir 1. febrúar og ég er ánægður með að vera hér."

,,Ég hló bara að þessu og hélt áfram. Liverpool er eitt af stærstu félögum í heimi en það kom aldrei upp í huga minn að fara."

Slapp
banner
banner
banner