Heimild: Sky
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, gæti reynt að fá Eden Hazard í sínar raðir í sumar.
Hazard er metinn á 30 milljónir punda en Arsenal og Chelsea hafa einnig áhuga á þessum magnaða Belga.
Njósnari Chelsea hefur meðal annars mætt á 20 leiki með Hazard undanfarið eitt og hálft ár en Manchester City er líka að fylgjast með gangi hjá þessum 21 árs gamla leikmanni sem og Real Madrid, Inter Milan og Paris Saint Germain.
,,Hazard hefur ótrúlega hæfileika og getur spilað á meðal þeirra bestu," sagði Mancini.
,,Við vitum hins vegar að það er áhugi frá stórum félögum í Evrópu og samningar verða ekki auðveldir."

