Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 13:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Liverpool 
Gerrard og Suarez með Liverpool gegn Tottenham
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun snúa aftur í liðið gegn Tottenham á mánudag eftir að hafa misst af 3-0 sigrinum á Wolves í vikunni en Kenny Dalglish staðfesti þetta á fréttamannafundi í morgun.

Luis Suarez er einnig klár eftir að hafa tekið út átta leikja bann og hann gæti líka komið inn í liðið.

,,Við þurfum að sjá hvernig hann (Suarez) er á æfingum áður en við veljum liðið á mánudag," sagði Dalglish.

,,Við munum taka allt með í reikninginn, við þurfum að skoða Luis, við þurfum að skoða hina strákana sem hafa verið að spila og skoða andstæðingana áður en við tökum ákvörðun."

,,Það er frábært að fá hann til baka og geta valið hann í liðið. Hann er stórkostlegur leikmaður en það eru margir aðrir stórkostlegir leikmenn í hópnum."
Slapp
banner