Mótmælendahópur hvetur stuðningsmenn Arsenal til að taka með sér svarta ruslapoka í leikinn gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Svörtu ruslapokana á að setja yfir auð sæti á vellinum til að vekja athygli á þeirri staðreynd að færri eru farnir að mæta á Emirates vegna lélegs árangurs liðsins.
Svörtu ruslapokana á að setja yfir auð sæti á vellinum til að vekja athygli á þeirri staðreynd að færri eru farnir að mæta á Emirates vegna lélegs árangurs liðsins.
Sæti á leikvangnum eru rauð og sjást því venjulega illa í hafi rauðklæddra stuðningsmanna.
„Hver var tilgangurinn með því að hækka miðaverð um sex prósent síðasta sumar ef félagið vill ekki eyða peningum? Við munum alltaf styða liðið og Arsene Wenger á virðingu skilið fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið," segir talsmaður hópsins.
„Það mun enginn vera reiður út í Robin van Persie ef hann fer næsta sumar. Er félagið að fara að fá leikmenn til að koma liðinu í fremstu röð á ný? Við viljum svör frá stjórninni."
Hvað þyrftu stuðningsmenn Wigan að taka með sér marga poka ef þeir færu í svipuð mótmæli?


