Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, segist ekki vilja taka við fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu.
Enska knattspyrnusambandið greindi frá því í morgun að John Terry verði ekki áfram fyrirliði landsliðsins á meðan ekki er búið að dæma í máli hans fyrir meinta kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand bróður Rio.

Ferdinand tók við fyrirliðabandinu af Terry árið 2010 eftir að upp komst um framhjáld hess síðarnefnda með fyrrum eiginkonu Wayne Bridge. Terry tók hins vegar aftur við fyrirliðabandinu síðari hluta árs 2010 og hefur verið með það síðan þá.
Fyrirliðastaðan hjá landsliðinu er laus núna og Ferdinand hefur verið orðaður við stöðuna sem og Steven Gerrard, Scott Parker og Frank Lampard. Ferdinand segist aftur á móti ekki hafa áhuga á að taka við bandinu.
,,Ég vil ekki vera fyrirliði Englands eftir nýliðna atburði, ég vil bara einbeita mér að því að spila með Utd. Ef ég kemst í landsliðshópinn verð ég ánægður eins og vanalega," sagði Ferdinand á Twitter síðu sinni rétt í þessu.